Ólafsvegur 30

1978

625

114.3
29,950,000 kr.
114.3 m²
5
3
1

Ólafsvegur 30

Rúmgóð og björt fjögurra herbergja íbúð með flottu útsýni um allan fjörð!   

Ólafsvegur 30, 625 Ólafsfjörður, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 215-4271 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóð og hlutdeild í sameign. 
Eignin Ólafsvegur 30 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 215-4271, birt stærð 114.3 fm.

Efri hæð í fjórbýli með frábæru útsýni yfir fjörðinn og svölum. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu, baðherbergi og 3 svefnherbergi. Flísar á baðherbergi og hluta eldhúss.  
Anddyri:  Parket á gólfi, fataskápar. 
Stofa/borðstofa:  Parket á gólfi, gengið út á svalir úr stofu.
Eldhús:  Ágæt eldhúsinnrétting, flísar á hluta gólfs, eldavél og gufugleypir.   
Baðherbergi:  Hvít innrétting, flísar á veggjum ofan og framan við baðkar, korkur á gólfi, hvít hreinlætistæki, handlaug, baðkar og salerni. 
Svefnherbergi eru þrjú, skápar í þeim öllum og parket á gólfi. 
Sameiginlegur stigagangur er mjög snyrtilegur, teppalagður og geymsla og sameiginlegt þvottahús er í kjallara. Þak var yfirfarið árið 2023.  
Geymsla:  steypt gólf, ómálað, gott hillupláss.   
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara. 

Allar frekari upplýsingar veitir
Arnar  773 5100  arnar@fastak.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Akureyrar hvetur því
væntanlega kaupendur til að kynna sér gaumgæfilega ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra fagmanna um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hafðu samband í dag...

... það er frítt!

Fáðu verðmat...

... það er frítt!